24.6.2008 | 07:42
Uppáhalds árstíðin mín er...
20.6.2008 | 17:27
Adrenalín
Það getur greinilega liðið langur tími milli færslna hjá mér. Það er eitthvað sem ég gerði mér alveg grein fyrir í upphafi. Ef ég ætla að hafa þetta algjört leyni leyni, þá verð ég að bíða eftir réttum aðstæðum. Að vera á réttum stað á réttum tíma og í réttum félagsskap, þ.e.a.s. mínum eigin. Það er svolítið fyndið að vera að laumast svona, minnir á eitthvað meiri háttar leynimakk. Kannski fær pínu spennufíkill útrás fyrir að laumast svona. Ekki það, minni spennufíkil en mig er erfitt að finna. Ég sæki síst af öllu í að fá í magann af spenningi yfir einhverju. Mér finnst ekki gaman að fá í magann. Það er ekki það að ég njóti ekki þess óvænta, ég komst bara að því fyrir ekki löngu að adrenalín fer ekki vel í mig. Satt að segja líður mér bara illa. Tannlæknirinn minn sagði mér að það væri þekkt að sumir þyldu adrenalín verr en aðrir. Og ég er semsagt sumir en ekki aðrir. Í þessu tilfelli a.m.s.k.Mér finnst það ágætt. Mér líkar ljómandi vel við mig eins og ég er. Það er ekki allir sem eru það heppnir. Ég meina að líka vel við sjálfan sig. Það líkar náttúrulega öllum vel við mig. Annað er nú ekki hægt.
Vinir og fjölskylda | Breytt 23.6.2008 kl. 07:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.6.2008 | 17:42
Gammur
Nú þegar ég gæti látið gamminn geysa um ritvöllinn þá dettur mér ekkert í hug. Ef til vill er þetta bara óvani. Með tímanum lagast þetta ef til vill og ég næ þá að skrifa einhverjar heljar langlokur um allt og ekkert.
Það er ákveðin kúnst að skrifa um allt og ekkert. Það er ekki öllum gefið að geta sett niður langa bálka um eitthvað sem ekkert er. En er ekki allt eitthvað? Getur maðu nokkurn tíma talað eða skrifað um ekkert? Er ekki einhver meining í öllu? Það getur verið að það sé ekki ýkja merkileg meining en ég held að allt hafi einhverja meiningu. Það skipta allir hlutir einhverju máli. Kannski mismiklu máli en það er meining í öllum hlutum. Og þess vegna á maður að reyna að taka eftir og njóta alls, líka þess sem virðist lítið og ómerkilegt.
4.6.2008 | 18:25
Dómar
Það heillar mig að geta tjáð mig um það sem ég er að hugsa án þess að nokkur viti af því. En ég veit að allt í kringum mig eru skarpir einstaklingar sem að hafa gaman af því að vera á netinu. Svo að ég ætla að reyna að segja sem mest án þess að gefa til kynna hver ég er. Þannig að ég segi eingöngu frá því sem ég er að hugsa, ekki um fjölskylduna eða vini eða vinnufélaga. Það verður gaman að vita hvernig það gengur.
Núna get ég til dæmis skrifað um ísbjörninn sem var skotinn í gær. En ég veit allsekki hvað mér finnst. Þegar maður veit ekki allar aðstæður er afskaplega erfitt að dæma. Finnst mér að minnsta kosti.
2.6.2008 | 18:40