19.1.2009 | 07:41
Það er óhollt....
Þetta er greinilega ekki hluti af mínu daglega ferli að blogga. En þegar rétti tíminn gefst og´mig langar til þá kemur smáfærsla. Eins og til dæmis núna.
Það er komið nýtt ár eins og flestir hafa kannski tekið eftir. Og ég er búin að ákveða að þetta verði gott ár, bæði fyrir mig persónulega eins og fyrir þjóðina í heild. Assgoti er ég góð að geta ákveðið fyrir heila þjóð hvernig árið verður. Svo mikill er máttur minn. Að minnsta kosti held ég að það sé betra að ákveða að allt verði eins og best verði á kosið og takast svo á við það EF svo verður ekki heldur en að mála allt í dökkum litum og vera í bullandi blús og geta kannski ekki tekið því sem verður gott. Það er óhollt að vera svartsýnn. Punktur og basta!
16.12.2008 | 16:10
Hið besta mál
3.12.2008 | 17:28
Jólagleði eða jólakvíði?
Alveg er það ótrúlegt hvað það getur liðið langur tími milli færslna. En kannski helgast það af því að ég hef svo sem ekkert mikið að segja. Það er svo sem nóg að gerast í heiminum, ekki vantar það. En það eru takmörk fyrir því hvað hægt er að bæta mikið við það sem sagt hefur verið og skrifað.
Nú styttist í jólin og alla þá gleði, ánægju, sorg og kvíða sem þau geta vakið. Skelfing held ég að það hljóti að vera erfitt að kvíða jólunum og sjá svo marga hlakka til. Og svo er ætlast til að allir hlakki til og komist í jólaskap. Og ef þú ert ekki að missa þig af tilhlökkun yfir jólunum þá er eitthvað að þér. Til að fyrirbyggja allann miskilning þá líkar mér mjög vel við jólin og flest allt sem þeim fylgja.
10.11.2008 | 07:42
Maður
30.10.2008 | 07:51
Vitiði bara hvað!!
Vitiði bara hvað ég gerði í gær! Ég sagði frá blogginu mínu! En.... ég tek það fram að sú sem veit af þessu er alveg einstök persóna. Ég myndi treysta henni fyrir öllu. Og ég get talað við hana um allt milli himins og jarðar. Hún er yndisleg manneskja, falleg, góð og hæfileikarík. Ég hef oft sagt um hana að hún sé eins og gangandi (eða dansandi) hæfileikar holdi klæddir. Hún er listagyðja, syngur, dansar, yrkir, málar og allt með eindæmum vel. Fyrir utan það hvað hún er ofboðslega, ofboðslega góð vinkona.
29.10.2008 | 07:47
"Kreppu"knús
27.10.2008 | 07:49
Þetta er skítt
Eitthvað eru nú færslur stopular hjá mér núna. Ég bara finn ekki hjá mér þörf til að tjá mig mikið. Kannski er það vegna þess að allir virðast þurfa að tjá sig um kreppu, hrun og fleira miður skemmtilegt. Ekki ég. Þetta er skítt en aðrir hafa sagt allt sem ég hef um málið að segja svo að ég segi bara pass á það.
En aftur að öðru og skemmtilegra (finnst mér í það minnsta) Veturinn er kominn í öllu sínu veldi. Snjór og frost. Sem er bara ágætt að morgu leyti. Að vísu verð ég að játa það að ég er stödd þar á landinu sem veturinn er kannski hvað vægastur. Fyrir vestan til að mynda er veturinn meira afgerandi en hér. Hérna eru litlar líkur á snjóflóðum og sjaldan kemur fyrir að nokkuð fari á kaf í snjó nema ef til vill stöku ferðagrill sem gleymst hefur úti á palli. Það er sjaldan harður vetur á höfuðborgarsvæðinu.
14.10.2008 | 07:47
(Ó)náttúrhamfarir
30.9.2008 | 07:44
Einkvæni, fjölkvæni, raðkvæni
Það eru einhverjar dýrategundir þá kannski aðalega fuglar sem velja sér maka fyrir lífstíð. Ég vil ekki vera þannig fugl. Ég er ekki hrifin af því að vera meða sama maka endalaust. Kannski hitti ég ekki rétta makann, kannski er einhver sem ég gæti verið með alla tíð. En þá verður maður kannski alltaf að vera að aðlagast einhverjum og það sem skiptir ekki minna máli, fara fram á að einhver önnur persóna aðlagist mér. Kannski er það þar sem hnífurinn stendur í kúnni (aumingja kusa) ég er ekkert góð í því að krefjast þess að ég eigi tilverurétt og að minn persónuleiki sé metinn að jöfnu við annara. Sem er synd því ég hef stórkostlegann persónuleika.
18.9.2008 | 07:45